Fotbolti.net
06.08.26 - 14:53
Elvar Geir Magnússon

Forlan gerir stuttan samning við Úrúgvæ

Diego Forlan stýrir úrúgvæska landsliðinu til áramóta.

Diego Forlan stýrir úrúgvæska landsliðinu til áramóta.

Canon

Mynd: EPA

Diego Forlan, fyrrum sóknarmaður Manchester United, er orðinn landsliðsþjálfari Úrúgvæ og stýrir þjóð sinni í vináttulandsleikjum í haust.

Forlan, sem er 47 ára, tekur við af Marcelo Bielsa sem lét af störfum eftir að Úrúgvæ mistókst að komast upp úr riðlakeppni HM. Úrúgvæ vann 15 af 39 leikjum undir stjórn Bielsa.
Bielsa hreinskilinn: Gaf úrúgvæskum fótbolta ekkert
TENGT EFNI

Bielsa hreinskilinn: Gaf úrúgvæskum fótbolta ekkert

Úrúgvæska fótboltasambandið hyggst ráða þjálfara til frambúðar um áramótinu.

Forlan er fótboltaáhugamaður að góðum kunnur en hann vann gullboltann þegar Úrúgvæ komst í undanúrslit HM í Suður-Afríku 2010. Á leikmannaferlinum lék hann meðal annars með Villarreal og Atletico Madrid.

Á þjálfaraferlinum hefur hann stýrt úrúgvæsku liðunum Penarol og Atenas.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.