06.08.26 - 09:30
Kári Snorrason
Real Madrid kaupir Diomande á 140 milljónir evra – Vilja sameina Salah og Nunez á ný

Real Madrid að klára kaupin á Fílabeinsstrendingnum.

Mynd: EPA

Nunez er leikmaður Al Hilal.

Mynd: Al Hilal

Liverpool hefur verið orðað við Asencio.

Mynd: EPA

Real Madrid vill fá Rodri.

Real Madrid er loks að klára kaupin á Yan Diomande, Trabzonspor vill sameina Mo Salah og Darwin Nunez á ný og Liverpool er með augastað á Raul Asencio, leikmanni Real Madrid. Þetta og margt fleira í þéttum slúðurpakka dagsins.
Real Madrid hefur náð samkomulagi við RB Leipzig um kaup á Fílabeinsstrendingnum Yan Diomande (19). Kaupverðið getur numið allt að 140 milljónum evra. (The Athletic)
Liverpool skoðar möguleikann á að fá Ibrahim Mbaye (18), senegalskan kantmann PSG. (The Times)
Aston Villa hefur náð samkomulagi við Atlético Madrid um kaup á ítalska vinstri bakverðinum Matteo Ruggeri (24). (Marca)
Liverpool hefur verið orðað við varnarmanninn Raul Asencio (23) hjá Real Madrid eftir að spænski landsliðsmaðurinn fékk þau skilaboð að hann mætti yfirgefa félagið í sumar. (Teamtalk)
Fulham er nálægt því að ganga frá kaupum á miðjumanninum Shea Charles (22), leikmanni Southampton. Kaupverðið er sagt vera um 30 milljónir punda. (Talksport)
Trabzonspor vinnur að því að sameina úrúgvæska framherjann Darwin Nunez (27) á ný með fyrrverandi samherja hans hjá Liverpool, Mohamed Salah (34). (Spor Depor)
Aston Villa býst við nýju tilboði frá Arsenal í enska varnarmanninn Ezri Konsa (28) en félagið reynir á meðan að semja við hann um nýjan samning. (Daily Mail)
Real Madrid gæti verið tilbúið að selja frönsku miðjumennina Aurelien Tchouameni (26) og Eduardo Camavinga (23), sem eru báðir á óskalista Manchester United, til að afla fjár fyrir kaupum á Rodri (30) frá Manchester City. (El Nacional)
Hamborg hefur áhuga á að fá belgíska varnarmanninn Sebastiaan Bornauw (27) frá Leeds aftur til þýsku Bundesligunnar. (Hamburger Abendblatt)