Fotbolti.net
06.09.14 - 11:27
Hafliði Breiðfjörð

Ronaldinho í mexíkósku deildina (Staðfest)

Ronaldinho spilar í Mexíkó næstu tvö árin.

Ronaldinho spilar í Mexíkó næstu tvö árin.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíumaðurinn Ronaldinho hefur gert samning við mexíkóska félagið Queretaro en hann hefur verið félagslaus síðan í júlí þegar hann yfirgaf Atletico Mineiro í heimalandinu.
Ronaldinho gerði tveggja ára samning við mexíkóska félagið en hann er 34 ára gamall fyrrverandi landsliðsmaður Brasilíu.

,,Ég valdi Mexiíkó útaf viðtökunum sem ég hef alltaf fengið hérna. Ég er mjög spenntur fyrir að spila fyrir Queretaro,\" sagði Ronaldinho á Twitter.

Ronaldinho spilaði 97 landsleiki fyrir Brasilíu og spilaði með liðum eins og Barcelona, AC Milan og Paris Saint Germain.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.