Fotbolti.net
06.09.21 - 17:06
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ítalska deildin

Ribery til Salernitana (Staðfest)

Franck Ribery

Franck Ribery

Canon

Mynd: Getty Images

Frakkinn Franck Reibery er genginn til liðs við nýliðanna í Salernitana í ítölsku Serie A.

Ribery kemur á frjálsri sölu eftir að hafa verið hjá Fiorentina undanfarin ár. Ribery er 38 ára kantmaður sem kom við sögu í 29 leikjum í Serie A í fyrra og skoraði tvö mörk.
Hann skrifaði undir eins árs samning með möguleika um eins árs framlengingu til viðbótar ef félagið heldur sér uppi.

Ribery er þekktastur fyrir tíma sinn hjá Bayern Munchen en hann var leikmaður Bayern á árunum 2007-2019. Hann varð þýskur meistari níu sinnum, bikarmeistari sex sinnum og vann einu sinni Meistaradeildina á tíma sínum í Munchen.

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio11+1629
2Inter11+1528
3Roma11+2127
4Milan11+1024
5Como11+823
6Frosinone11+920
7Juventus11+318
8Bologna11+217
9Cagliari11-516
10Napoli11+415
11Torino11-214
12Atalanta11-314
13Genoa11-513
14Lecce11-1010
15Fiorentina11-89
16Parma11-88
17Sassuolo11-138
18Monza11-87
19Venezia11-136
20Udinese11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.