Fotbolti.net
06.09.26 - 17:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Myndir: Þór átti að fá vítaspyrnu - „Augljósasta víti sem ég hef séð"

Fleiri myndir hér að neðan.

Fleiri myndir hér að neðan.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þór átti að fá vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks gegn FH þegar Sigfús Fannar Gunnarsson, sóknarmaður Þórs, féll við inn á vítateig FH. Það gerði hann efitr að Ísak Óli Ólafsson, fyrirliði FH, steig á hann og tók hann úr skónum þegar hann varðist Þórsaranum.

Pétur Guðmundsson, dómari leiksins, dæmdi ekkert og FH fékk markspyrnu. Það kom ekki að sök því Þór skoraði eina mark leiksins í seinni hálfleik og vann 1-0 sigur.
Lestu um leikinn: Þór 1 - 0 FH
„Ég man ekki eftir því að FH hafi fengið færi og við eigum náttúrulega að fá víti hérna í fyrri hálfleik," sagði Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, í viðtali við Fótbolta.net eftir leikinn í dag.

Hann var svo spurður út í vítaatvikið. Ertu búinn að fá einhverjar útskýringar frá Pétri?

„Nei, það þarf enga útskýringu á því. Ég veit ekki... það er bara stigið á hann, þetta er bara brot og augljósasta víti sem ég hef séð. Ég bara skil ekki af hverju hann flautar ekki i flautuna. Ég bara næ því ekki. Þetta er bara fáránlegt," sagði Siggi en viðtalið má nálgast í spilaranum hér að neðan.

Ármann Hinrik tók meðfylgjandi myndir.
Myndir: Þór átti að fá vítaspyrnu - „Augljósasta víti sem ég hef séð"
Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Siggi Höskulds: Hann er með stærsta Þórshjarta í heiminum

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.22+4653
2Fram22+1445
3KR22+2544
4Breiðablik22+230
5ÍA22-230
6Keflavík22-528
7Stjarnan22-828
8Valur22-627
9FH22-1221
10Þór22-2821
11KA22-1320
12ÍBV22-1318
Ísak stígur á Sigfús og tekur hann úr skónum.

Ísak stígur á Sigfús og tekur hann úr skónum.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Myndir: Þór átti að fá vítaspyrnu - „Augljósasta víti sem ég hef séð"
Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Skórinn flaug af.

Skórinn flaug af.

Canon

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.