Fotbolti.net
06.10.14 - 11:41
Magnús Már Einarsson

Arnar Þór Viðarsson ráðinn þjálfari Cercle Brugge (Staðfest)

Arnar Þór Viðarsson á æfingu hjá Cercle Brugge.

Arnar Þór Viðarsson á æfingu hjá Cercle Brugge.

Canon

Mynd: Kristján Bernburg

Arnar Þór Viðarsson hefur verið ráðinn þjálfari Cercle Brugge í belgísku úrvalsdeildinni.

Arnar hefur verið aðstoðarþjálfari Cercle Brugge í rúmt ár og hann hefur nú tekið við liðinu.

Lorenzo Staelens þjálfari Cercle Brugge var rekinn í morgun eftir lélegt gengi að undanförnu en liðið hefur einungis unnið einn af síðustu fimm leikjum og situr í þriðja neðsta sæti í belgísku deildinni.
Arnar gekk til liðs við Cercle Brugge árið 2008 og lék með liðinu þar til síðastliðið vor.

Hinn 36 ára gamli Arnar Þór hefur leikið erlendis frá því 1997 en hann var í mála hjá belgíska félaginu Lokeren í níu ár á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.