Fotbolti.net
06.10.14 - 19:42
Elvar Geir Magnússon

Maggi Gylfa hættur með Val (Staðfest)

Tekur sér frí frá þjálfun

Magnús Gylfason.

Magnús Gylfason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Magnús Gylfason er hættur sem þjálfari Vals en þetta kemur fram í tilkynningu sem Hlíðarendafélagið sendi frá sér rétt í þessu.
Þetta kemur ekki á óvart en lengi hafa verið sögusagnir í gangi varðandi þjálfaraskipti hjá Valsmönnum.

Magnús stýrði Val í tvö tímabil en í bæði skiptin lenti liðið í fimmta sætinu. Markmiðið fyrir sumarið var að ná Evrópusæti en það tókst ekki.

Yfirlýsing Vals:
Knattspyrnufélagið Valur og Magnús Gylfason hafa komist að samkomulagi um að Magnús láti af stöfum sem aðalþjálfari meistaraflokks karla í knattspyrnu.

Magnús og Valur hafa átt afar farsælt samstarf undanfarin tvö ár og er ákvörðunin fyrst og fremst Magnúsar þar sem hann hyggst taka sér frí frá þjálfun.

Valur þakkar Magnúsi kærlega fyrir vel unnin störf í þágu félagsins og vonar félagið að samstarf verði á öðrum sviðum fótboltans sem allra fyrst. Valur mun nú hefja leit að nýjum þjálfara í stað Magnúsar og skýrast þau mál á næstu vikum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.