Fotbolti.net
06.10.14 - 17:37
Elvar Geir Magnússon

Russell Slade nýr stjóri Cardiff (Staðfest)

Russell Slade.

Russell Slade.

Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff City hefur gengið frá ráðningu á Russell Slade sem nýjum knattspyrnustjóra félagsins. Slade er 53 ára og var síðast við stjórnvölinn hjá Leyton Orient.

Cardiff hefur verið stjóralaust síðan Ole Gunna Solskjær lét af störfum 18. september.
Slade sagði upp hjá Leyton Orient 24. september til að taka við hjá Cardiff.

Velska liðið situr í 15. sæti Championship-deildarinnar eftir að hafa fallið úr ensku úrvalsdeildinni síðasta tímabil.

Vincent Tan, eigandi Cardiff, segist vonast til að Slade verði lengur við stjórnvölinn hjá Cardiff en Arsene Wenger hefur verið hjá Arsenal sem eru 18 ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.