Hólmar Örn Eyjólfsson var í byrjunarliði Levski Sofia og lék allan leikinn gegn Ludogorets í kvöld.
Ludogorets komst yfir eftir 16 mínútu og gerði út um leikinn þegar 10 mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Lokatölur 2-0 fyrir Ludogorets og svekkjandi tap niðurstaðan hjá Levski.
Levski er í öðru sæti búlgörsku úrvalsdeildarinnar, núna fjórum stigum frá Ludogorets.
Hólmar Örn var í dag að byrja sinn fjórða leik á tímabilinu, en hann er að koma úr afar erfiðum meiðslum. Hann er ekki í landsliðshópnum sem mætir Frakklandi og Andorra í undankeppni EM 2020, nema að hann verði þá kallaður inn vegna meiðsla annarra leikmanna.
Athugasemdir