06.11.13 - 15:54
Elvar Geir Magnússon
Jökull Elísabetarson til ÍBV (Staðfest)

Jökull og Sigurður Ragnar við undirskriftina.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miðjumaðurinn Jökull Elísabetarson er genginn í raðir ÍBV en hann var kynntur á fréttamannafundi sem nú stenur yfir.
Samningurinn er til þriggja ára.
Samningurinn er til þriggja ára.
Jökull hefur verið hjá Breiðabliki undanfarin ár og átti sitt besta tímabil 2010 þegar hann var lykilmaður í liðinu þegar það varð Íslandsmeistari.
Hann lék aðeins sex deildarleiki með liðinu á liðnu sumri og ákváðu Blikar að endurnýja ekki samning við hann.
Í fyrra var hann lánaður til KV og var orðaður við endurkomu í vesturbæinn ásamt því að Fylkir hafði áhuga á honum.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari ÍBV, sagði á fundinum að stefnan væri sett á að gera betur á næsta ári en á liðnu tímabili og að hann væri ánægður með að fá Jökul í sínar raðir.
Viðtal við Jökul kemur inn á Fótbolta.net á eftir.