Fotbolti.net
06.11.13 - 17:30
Elvar Geir Magnússon

Selfoss fær leikmann frá Brentford (Staðfest)

Gæti fengið fleiri frá enska félaginu

Montell Moore í leik með unglingaliði Brentford.

Montell Moore í leik með unglingaliði Brentford.

Canon

Mynd: Heimasíað Brentford

Selfoss er í samstarfi við Brentford en forsvarsmenn Selfyssinga heimsóttu enska félagið á dögunum. Þar var gengið frá því að ungur miðjumaður, Montell Moore, muni ganga í raðir Selfoss.

<i>„Hann kemur til okkar i&#769; febru&#769;ar og við reiknum með að hann verði með okkur u&#769;t ti&#769;mabilið,“</i> segir O&#769;skar Sigurðsson, formaður knattspyrnudeildar Selfoss, við sunnlenska.is.
Moore verður 19 ára í næsta mánuði. Mögulegt er að Selfoss muni fá fleiri leikmenn frá Brentford til liðs við sig fyrir næsta tímabil.

Tveir ungir liðsmenn Selfoss, þeir Svavar Berg Jóhannsson og Þorsteinn Daníel Þorsteinsson, voru við æfingar hjá Brentford fyrir skömmu.

Selfoss endaði í áttunda sæti 1. deildar í sumar en það var fyrsta tímabil liðsins undir stjórn Gunnars Guðmundssonar.

Heimild: sunnlenska.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.