06.11.15 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Bjarni Þórður í Aftureldingu (Staðfest)

Bjarni Þórður Halldórsson genginn til liðs við Aftureldingu

Mynd: Heimasíða Aftureldingar

Bjarni Þórður Halldórsson er genginn til liðs við Aftureldingu og mun leika með liðinu í 2.deild á næstu leiktíð.
Bjarni Þórður kemur til félagsins frá Pepsi deildar liði Fylkis en Bjarni lék 8 leiki með Fylki í Pepsi deildinni á síðustu leiktíð.
Þessi 32 ára gamli markvörður er gífurlega reynslumikill en hann á 163 leiki að baki í efstu deild.
Bjarni gerir tveggja ára samning við Aftureldingu en á heimasíðu félagsins segir að hann muni einnig koma að markvarðarþjálfun hjá félaginu.
Afturelding endaði í 6.sæti 2.deildar á síðustu leiktíð.