Fotbolti.net
06.11.15 - 11:58
Magnús Már Einarsson

Róbert Örn í Víking R. (Staðfest)

Róbert Örn í Víking R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingur R. hefur fengið markvörðinn Róbert Örn Óskarsson í sínar raðir frá FH. Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi í Víkinni nú rétt í þessu.

Róbert skrifaði undir þriggja ára samning við Víking.

„Við teljum það bera vott um metnað að fá markvörð Íslandsmeistaranna í markið hjá okkur,\" sagði Heimir Gunnlaugsson formaður meistaraflokksráðs Víkings við undirskriftina.
FH fékk færeyska landsliðsmarkvörðinn Gunnar Nielsen í sínar raðir í síðustu viku og í kjölfarið hefur Róbert ákveðið að róa á önnur mið.

Róbert hefur varið mark FH undanfarin þrjú ár en hann varð Íslandsmeistari með liðinu í sumar.

Róbert var í tvo mánuði hjá Víking árið 2011 en hann lék ekki deildarleik með félaginu þá.

Danski markvörðurinn Thomas Nielsen varði mark Víkings í sumar en óvissa er um framtíð hans hjá félaginu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.