Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 06. nóvember 2019 16:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarlið Bayern og Juventus: Ron og Lewa leiða línurnar
Aaron Ramsey er í byrjunarliði Juventus.
Aaron Ramsey er í byrjunarliði Juventus.
Mynd: Getty Images
Tveir leikir hefjast klukkan 17:55. Það eru viðureignir Bayern Munchen og Olympiakos annars vegar og Lokomotiv Moskvu og Juventus hins vegar.

Fyrrnefnda viðureignin er í B-riðli þar sem Bayern er á toppnum með fullt hús stiga fyrir kvöldið. Olympiakos er á botni riðilsins með eitt stig. Tottenham heimsækir Rauðu Stjörnuna í Belgrad seinna í kvöld. Báðir leikirnir í riðlinum eru í beinni útsendingu á rásum Stöð 2 Sport.

Bayern rak um helgina Niko Kovac sem stjóra liðsins eftir rúmt ár í starfi. Robert Lewandowski byrjar líkt og vanalega í fremstu víglínu hjá Bayern. Pólverjinn hefur verið iðinn við kolann á leiktíðinni.

Juventus og Atletico Madrid eru jöfn á toppi D-riðils með sjö stig. Lokomotiv er með þrjú stig í þriðja sæti riðilsins og Bayer frá Leverkusen í botnsætinu án stiga. Bayer tekur á móti Atletico í hinni viðureign riðilsins.

Cristiano Ronaldo og Gonzalo Higuain eru fremstu menn hjá Juventus og þá er Paolo Dybala á bekknum. Aaron Ramsey leikur fyrir aftan Ronaldo og Higuain.

Byrjunarlið Bayern: Neuer, Pavard, Martinez, Alaba, Davies, Goretzka, Kimmich, Gnabry, Muller, Coman, Lewandowski.

Byrjunarlið Juventus: Szczesny, Bonucci, Rugani, Danilo, Sandro, Pjanic, Rabiot, Khedira, Ramsey, Ronaldo, Higuain.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner