Fotbolti.net
06.11.19 - 12:30
Magnús Már Einarsson

Lampard hefur ekki séð annan eins leik

Lampard hefur ekki séð annan eins leik
Canon

Mynd: Getty Images

<i>„Það hafa bæði verið brjáluð og frábær kvöld í gegnum tíðina og þetta er eitt af þeim,"</i> sagði Frank Lampard, stjóri Chelsea, eftir 4-4 jafntefli gegn Ajax í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Chelsea kom til baka í síðari hálfleik eftir að hafa lent 4-1 undir. Ajax missti tvo menn af velli og Cesar Azpilicueta, fyrirliði Chelsea, virtist hafa skorað sigurmarkið seint i leiknum en það mark var dæmt af eftir notkun á VAR.

Hendi var dæmd á Tammy Abraham í aðdraganda marksins.

„Það eru ekki margir leikir af mínum ferli sem hægt er að líkja við þennan, VAR er nýtt dýr í leiknum og síðan voru rauðu spjöldin," sagði Lampard.

„Við þurfum að þétta okkur aftarlega á vellinum en með þessum liðsanda getum við farið langt. Þú þarft karakter. Það væri auðvelt að gefast upp í 3-1 eða 4-1 en við gerðum það ekki."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.