Fotbolti.net
06.11.21 - 09:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Bryndís Arna og Þórdís Elva í Val (Staðfest)

Bryndís og Þórdís Elva.

Bryndís og Þórdís Elva.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Íslandsmeistarar Vals hafa sótt góðan liðsstyrk úr Fylki fyrir næstu leiktíð. Bryndís Arna Níelsdóttir og Þórdís Elva Ágústsdóttir eru gengnar í raðir Hlíðarendafélagsins.

Valur varð Íslandsmeistari í sumar en Fylkir féll úr efstu deild eftir vonbrigðatímabil.
Bryndís Arna er einn efnilegasti sóknarmaður landsins. Hún skoraði sex mörk í þrettán leikjum í sumar. Hún er átján ára gömul og skoraði tíu mörk í fimmtán leikjum tímabilið 2020. Síðasta vetur var Bryndís valin í A-landsliðið fyrir leiki í undankeppni EM.

Þórdís Elva er 21 árs miðjumaður. Hún er uppalin í Haukum en fór yfir í Fylki sumarið 2019. Hún skoraði eitt mark í sextán leikjum í sumar. Þórdís á að baki sjö leiki fyrir yngri landslið Íslands.

„Við bjóðum Þórdísi Elvu og Bryndísi Örnu velkomnar á Hlíðarenda," segir í tilkynningu Vals. Þessir tveir leikmenn munu eflaust koma með ferska vinda og aukna samkeppni inn í lið Vals fyrir næstu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.