Fotbolti.net
06.11.21 - 19:44
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Farke látinn fara eftir fyrsta sigurinn (Staðfest)

Farke látinn fara eftir fyrsta sigurinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Norwich vann sinn fyrsta sigur í ensku úrvalsdeildinni í dag en liðið lagði Brentford með tveimur mörkum gegn einu.
Þrátt fyrir það hefur stjórnin ákveðið að láta Daniel Farke stjóra liðsins taka pokan sinn.

Hann tók við sem stjóri Norwich sumarið 2017 og sigraði Championship deildina tímabilið 2018/19. Féll síðan úr úrvalsdeildinni en kom liðinu strax aftur upp.

Liðið er nú á botninum með fimm stig eftir ellefu leiki.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun, ég veit hversu ákveðinn Daniel Farke er að ná árangri en okkur finnst þetta vera tími til að gera breytingar og til að ná að halda sætinu í Úrvalsdeildinni."

„Allir í Norwich ættu að vera þakklát fyrir störf Farke og hans teymis. Þeir náðu í tvo Championship titla, mörg minnileg augnablik," segir meðal annars í yfirlýsingu félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.