06.11.21 - 13:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Roy Keane brjálaður: Ég gefst upp

Roy Keane.

Mynd: Getty Images

Roy Keane.

Mynd: Getty Images
Roy Keane, fyrrum fyrirliða Manchester United, er alls ekki skemmt yfir stöðunni hjá sínu gamla félagi þessa stundina.
Keane er í dag sérfræðingur hjá Sky Sports í kringum leik Man Utd og Man City. Staðan í hálfleik var 2-0 fyrir City og var United í raun heppið að vera ekki fleiri mörkum undir.
Keane var ekki sáttur þegar farið var yfir málin í hálfleik. „Þetta eru landsliðsmenn. Ég get ekki skilið þennan varnarleik. Ég gefst upp," sagði Keane sem er búinn að fá nóg af þessari spilamennsku.
„Þegar ég keyrði hingað í dag, þá hugsaði ég með mér að United ætti kannski möguleika. Þeir eru á heimavelli og svona. En þetta hefur verið svona allt tímabilið, fá á sig fullt af færum. City hafa verið smá hrokafullir og þeir hafa gefið United færi."
„Nema eitthvað mikið breytist í hálfleik, þá endar þetta með fjögurra, fimm marka mun aftur."
United tapaði síðasta heimaleik sínum - á undan þessum - 0-5 gegn Liverpool.

Roy Keane: "These are international footballers. I can't understand the defending. I give up." #mulive [@footballdaily] pic.twitter.com/YkMG5WRjUp
— utdreport (@utdreport) November 6, 2021