06.11.21 - 14:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Það er kominn tími til að fara"

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United.

Mynd: EPA

Raddir þess efnis að núna sé kominn tími til - hjá Manchester United - að láta Ole Gunnar Solskjær fara eru að verða æ háværari.
Síðustu tveir heimaleikir liðsins í ensku úrvalsdeildinni hafa verið hörmulegir. Liðið hefur tapað sannfærandi gegn tveimur helstu erkifjendum sínum - liðum sem eiga að vera keppinautar þeirra, en í staðinn leit United út eins og B- eða C-deildarlið í báðum leikjum.
Á samfélagsmiðlum má heyra mjög hávær köll um að núna sé kominn tími á að Solskjær segi af sér. Stuðningsfólk United er farið að snúast gegn goðsögninni og skrifar Samuel Luckhurst, penni Manchester Evening News, að það hafi verið augljóst á vellinum í dag að Solskjær sé búinn að missa stuðninginn.
Henry Winter, einn virtasti blaðamaður Bretlands, segir að það sé kominn tími til að fara.
„Leikaðferð Man Utd: Að vona að De Gea bjargi þeim á einum endanum og Ronaldo á hinum endanum. Það gekk ekki upp. Vonlaus frammistaða," skrifar Winter.
„Það er ekki hægt að halda svona áfram. Solskjær kom inn, reisti skútuna við eftir að Jose var með liðið en núna eru þeir að sökkva. Það er kominn tími til að fara."
Miðað við viðbrögð eftir þennan leik á samfélagsmiðlum, þá er ekki mikið af fólki ósammála þessu - nema þá stuðningsfólk annarra liða.

#mufc approach: hope De Gea rescues them at one end and hope Ronaldo rescues them at the other. Neither hope transpired. Hopeless performance. No shape or belief. Can’t keep going on like this. Solskjaer came in, steadied the ship post-Jose but now they’re sinking. Time to go.
— Henry Winter (@henrywinter) November 6, 2021