06.11.26 - 19:43
Ívan Guðjón Baldursson
Hafnaði úrvalsdeildarfélögum út af lítilli enskukunnáttu

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Franski þjálfarinn Franck Haise hefur hafnað nokkrum enskum úrvalsdeildarfélögum á síðustu árum, en honum heldur áfram að ganga feikilega vel í franska boltanum.
Haise er aðalþjálfari Rennes í dag eftir að hafa gert frábæra hluti með Lens og Nice á síðustu árum.
Haise segist hafa hafnað úrvalsdeildarfélögunum vegna takmarkaðrar enskukunnáttu.
„Það var ég sem hafnaði að fara í viðræður við þessi félagslið út af vankunnáttu minni á enska tungumálinu. Ég er ekki tilbúinn fyrir þetta stökk, ég þarf að læra ensku," segir Haise, sem hefur verið að nota Duolingo.
Haise, sem er 55 ára gamall og var þjálfari ársins í Ligue 1 árið 2023, hefur hafnað Brighton, Everton og Nottingham Forest á síðustu árum.
„Ég þarf að geta átt samskipti við leikmenn og starfsmenn. Ég er næstum kominn með 1000 daga á Duolingo!"
Haise er samningsbundinn Rennes til sumarsins 2028 .