Fotbolti.net
06.12.13 - 14:13
Elvar Geir Magnússon

Damir Muminovic í Breiðablik (Staðfest)

Damir skrifaði undir þriggja ára samning við Breiðablik.

Damir skrifaði undir þriggja ára samning við Breiðablik.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Damir Muminovic var rétt í þessu að skrifa undir samning við Breiðablik og er fyrsti leikmaðurinn sem Ólafur Kristjánsson fær til sín síðan tímabilinu lauk. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.

Stuðningsmenn Breiðabliks geta séð Damir í Blikatreyjunni á morgun klukkan 14:30 þegar liðið mætir KR í Egilshöll í úrslitaleik Bose-æfingamótsins.
Damir er fæddur 1990 en hann átti mjög gott tímabil með Víkingi Ólafsvík á liðnu sumri þó það hafi ekki dugað til að bjarga liðinu frá falli.

Hann er uppalinn hjá HK og lék með meistaraflokki félagsins ungur að aldri. Sumarið 2012 lék hann með Leikni í Breiðholti.

Damir mun fylla skarð Sverris Inga Ingasonar sem er á leið til Noregs í atvinnumennsku að öllum líkindum.

Rætt verður við Damir í útvarpsþætti Fótbolta.net á X-inu FM 97,7 á morgun en þátturinn er milli 12 og 14.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.