Fotbolti.net
06.12.13 - 11:04
Magnús Valur Böðvarsson

Vignir Daníel í KV (Staðfest)

Vignir í búningi KV

Vignir í búningi KV

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Knattspyrnufélag Vesturbæjar eða KV sem komst uppí 1. deild í sumar í fyrsta skiptið hefur fengið til sín vinstri bakvörðinn Vigni Daníel Lúðvíksson frá Hamri
Vignir er 21 árs gamall bakvörður og var einn allra besti leikmaður Hamars í 2. deildinni í sumar og var meðal annars valinn leikmaður umferðarinnar í 2. deildinni í fyrra en það var einmitt eftir frábæra frammistöðu í óvæntum Hamarssigri gegn KV.

Vignir lék 22 leiki með Hamri í deild og bikar í sumar og skoraði þrjú mörk, hann hefur einnig leikið með Álftanesi og Fjarðarbyggð en hann er uppalinn í FH auk þess að hafa leikið með Fram í 2. flokki.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem KV fær til sín fyrir sitt fyrsta tímabil í 1.deild sem annars höfðu misst tvo lykilmenn, nafnana Einar Má Þórisson og Einar Bjarna Ómarsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.