Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 06. desember 2021 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
KALEO heldur áfram að styðja við bakið á Aftureldingu
KAELO er stuðningsaðili við knattspyrnulið Aftureldingar.
KAELO er stuðningsaðili við knattspyrnulið Aftureldingar.
Mynd: Mosfellingur - Raggi Óla
Stórhljómsveitin KALEO mun halda áfram að styðja við bakið á Aftureldingu næsta sumar. Á næsta ári verður merki hljómsveitarinnar framan á búningum bæði karla- og kvennaliðs félagsins.

„Við erum ótrúlega stoltir að styrkja Aftureldingu, liðið úr okkar heimabæ - Mosfellsbæ. Bæði karla- og kvennaliðið verða með merki KALEO framan á treyjum sínum næstu árin," segir í tilkynningu frá hljómsveitinni.

KALEO er mjög vinsæl hljómsveit sem hefur náð góðum árangri á Íslandi og utan Íslands.

Kvennalið Aftureldingar mun leika í efstu deild næsta sumar og karlaliðið verður áfram í Lengjudeildinni, næst efstu deild.

Hér að neðan má sjá tilkynningu frá hljómsveitinni.


Athugasemdir
banner
banner