Enska landsliðið hefur náð góðum árangri á síðustu stórmótum undir stjórn Gareth Southgate. Þrátt fyrir það efast margir um hann.
Liðið var í fjórða sæti á HM 2018, tapaði síðan í úrslitaleik á EM í fyrra en liðið ætlar sér alla leið í ár. Bukayo Saka leikmaður enska liðsins hvetur fólk til að hafa meiri trú á Southgate.
„Auðvitað styðjum við allir við bakið á honum. Hann er með magnaðan árangur. Hann hefur komið okkur mjög langt, tekur stórar ákvarðanir og nær þeim alltaf rétt," sagði Saka.
„Svo við þurfum að reyna að treysta honum meira, hafa trú á honum, hætta að efast um hann og við verðum á góðum stað."
Athugasemdir