Fotbolti.net
07.01.14 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Nainggolan til Roma (Staðfest)

Nainggolan til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Radja Nainggolan er genginn til liðs við toppbaráttulið AS Roma í ítölsku efstu deildinni.

Nainggolan er gríðarlega eftirsóttur af ýmsum stórliðum og greiðir Roma 3 milljónir evra fyrir að fá leikmanninn á láni.
Ákvæði er þó í lánssamningnum sem segir til um að Roma geti keypt helming leikmannsins af Cagliari fyrir 6 milljónir evra í sumar, samtals 9 milljónir fyrir helming af Belganum.

,,Það er erfitt fyrir innfæddan Sardiníubúa að yfirgefa eyjuna. Það er það líka fyrir mig, þó ég hafi verið ættleiddur á eyjuna,\" sagði Nainggolan.

,,Ég er ánægður því þetta getur verið mikilvægt skref fyrir knattspyrnuferilinn minn. Aftur á móti þá er ég sorgmæddur því ég er að yfirgefa stað sem ég hef verið á lengi. Hér varð ég að manni og óx sem knattspyrnumaður.

,,Ég var viss um að félagið gæti áorkað einhverju mikilvægu en því miður hafa ýmis vandamál staðið í vegi fyrir því. Ég vona að þessi vandamál verði leyst sem fyrst vegna þess að borgin og stuðningsmenn Cagliari eiga skilið miklu meira en það sem hefur verið gefið síðustu ár.

,,Ég mun aldrei hætta að þakka forsetanum, liðsfélögunum og þjálfurunum sem voru kringum mig þessi ár hérna. Ég vil líka þakka stuðningsmönnunum sem hafa gert mig að stærsta stuðningsmanni Cagliari.\"

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.