Fotbolti.net
07.01.14 - 09:30
Magnús Már Einarsson

Telma Þrastardóttir í Breiðablik (Staðfest)

Telma Þrastardóttir í Breiðablik (Staðfest)
Canon

Mynd: Heimasíða Breiðabliks

Kvennaboltinn
Telma Hjaltalín Þrastardóttir hefur gert þriggja ára samning við Breiðablik en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins.
Þessi ungi sóknarmaður kemur til Breiðabliks eftir að hafa leikið með uppeldisfélagi sínu Aftureldingu síðastliðið sumar.

Telma, sem er 18 ára gömul, hefur leikið 45 landsleiki fyrir U17 og U19 ára landslið íslands og skorað í þeim 17 mörk.

Síðastliðið haust gekk hún í raðir Stabæk í Noregi en hún spilaði þar einnig að hluta til árið 2010 og 2011.

Sumarið 2012 var Telma á mála hjá Val en síðastliðið sumar skoraði hún átta mörk í sextán leikjum í Pepsi-deildinni með Aftureldingu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.