Fotbolti.net
07.01.16 - 18:12
Elvar Geir Magnússon

Curtis stjóri Gylfa út tímabilið (Staðfest)

Alan Curtis er 61 árs.

Alan Curtis er 61 árs.

Canon

Mynd: Getty Images

Alan Curtis verður knattspyrnustjóri Gylfa Þórs Sigurðssonar og félaga í Swansea út tímabilið. Þetta hefur verið staðfest en Swansea er í sautjánda sæti ensku úrvalsdeildarinnar, rétt fyrir ofan fallsætin.
Þegar Garry Monk var rekinn í byrjun desember var Curtis ráðinn, fyrst til bráðabirgða. Marco Bielsa, David Moyes og Brendan Rodgers eru meðal þeirra sem hafa verið orðaðir við starfið en nú er ljóst að Curtis heldur um stjórnartaumana út tímabilið.

„Það er heiður að vera beðinn um að stýra liðinu áfram. Ef félagið telur mig vera rétta manninn til að bæta liðið þá mun ég gefa allt sem ég get í það. Ég er sannfærður um að við getum komist hærra á töflunni,\" segir Curtis.

Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, segir að rætt hafi verið við ýmsa aðila um að taka við stjórastarfinu.

„Sumir vildu ekki yfirgefa sitt félag á miðju tímabili og aðrir vildu ekki fara í botnbaráttunni. Á endanum töldum við best að treysta á þá menn sem við höfum,\" segir Jenkins.

Curtis er fyrrum leikmaður Swansea og velska landsliðsins en hann var hluti af þjálfarateymi Swansea áður en Monk var rekinn.

Alan Curtis' #Swans record as caretaker manager #SSNHQ pic.twitter.com/5vLpdQ38kE

— Sky Sports News HQ (@SkySportsNewsHQ) January 7, 2016


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.