07.01.16 - 19:00
Elvar Geir Magnússon
Hertha Berlin fær ungan leikmann frá Bayern (Staðfest)

Sinan Kurt á æfingu.

Mynd: Getty Images

Sinan Kurt á æfingu.

Mynd: Getty Images
Bayern München hefur staðfest að hinn 19 ára Sinan Kurt hefur gert þriggja og hálfs árs samning við Herthu Berlin.
Hertha hefur leikið vel á tímabilinu og er í þriðja sæti með 32 stig, 14 stigum frá Bayern sem er á toppnum.

Kurt er miðjumaður sem hefur verið með varaliði Bayern á tímabilinu og ekki náð að fá tækifæri með aðalliðinu.
Kurt lék aðeins einn leik fyrir aðallið Bæjara en það var einmitt gegn Herthu á síðasta tímabili.
Samkvæmt fjölmiðlum er klásúla í samningnum um að Bayern geti keypt Kurt til baka í framtíðinni hafi félagið áhuga á.