Fotbolti.net
07.01.16 - 12:07
Elvar Geir Magnússon

Januzaj kominn aftur til Man Utd úr láni (Staðfest)

Januzaj fékk afar lítið að spila hjá Dortmund.

Januzaj fékk afar lítið að spila hjá Dortmund.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Belginn Adnan Januzaj er á leið til Manchester United á ný en lánssamningi hans við þýska liðið Borussia Dortmund hefur verið rift.

Januzaj fékk afar fá tækifæri hjá Dortmund en upphaflega átti hann að vera hjá félaginu út tímabilið. Athyglisvert er að hann byrjaði þrjá leiki í röð hjá United áður en hann var lánaður til Dortmund en það ku hafa verið hans vilji að fara.
Lánsdvölin var ákaflega misheppnuð og er hann nú kominn með leikheimild hjá United.

Januzaj verður 21 árs í febrúar en hann á fimm A-landsleiki að baki fyrir Belgíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.