07.01.16 - 18:03
Elvar Geir Magnússon
Joe Cole semur við Coventry út tímabilið (Staðfest)

Joe Cole leikur með Coventry í C-deildinni.

Mynd: Getty Images

Joe Cole er genginn í raðir Coventry. Þessi fyrrum leikmaður West Ham og Chelsea var á lánssamningi en hefur nú formlega gengið í raðir Coventry út tímabilið.
Coventry er í harðri toppbaráttu í ensku C-deildinni, situr í fjórða sæti en er aðeins fjórum stigum frá Burton Albion í toppsætinu.

Þessi 34 ára leikmaður er uppalinn hjá Hömrunum en lék 183 leiki fyrir Chelsea og skoraði 28 mörk. Eftir sjö ár á Stamford Bridge lék hann svo með Liverpool, Lille, West Ham aftur og Aston Villa.
Cole á 56 landsleiki fyrir England. Tony Mowbray, stjóri Coventry, segist hafa notið þess að vinna með Cole sem hefur spilað sjö leiki fyrir Coventry síðan hann kom á láni og skorað eitt mark. Það var úr glæsilegri aukaspyrnu í 4-3 sigri gegn Barnsley.
„Starfslið okkar hefur unnið hart að því að byggja upp líkamlegt ástand hans. Það er frábært að hafa hann í hópnum og aðrir leikmenn græða á reynslu hans. Hann hefur jákvæð áhrif á yngri leikmenn,\" segir Mowbray.