07.01.16 - 15:14
Magnús Már Einarsson
Jónatan Hróbjartsson í Fjölni (Staðfest)

Jónatan Hróbjartsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Hróbjartsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir hefur fengið kantmanninn Jónatan Hróbjartsson til liðs við sig frá ÍR.
Jónatan er fæddur árið 1994 en hann hefur leikið með ÍR allan sinn feril.

„Jónatan er hæfileikarríkur leikmaður sem hefur verið alla sína tíð hjá ÍR en þar hefur hann vaxið sem leikmaður undir stjórn Arnar Þór Valssonar þjálfara ÍR,\" sagði Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis við Fótbolta.net í dag.
„Hann kom á viku prufu og okkur leist mjög vel á það sem hann hafði upp á að bjóða, með góðan leikskilning, sterkur og mikill karakter.\"
„Leikmaður sem smellpassar inn í leikmannahópinn hjá okkur,\" sagði Ágúst.
Jónatan byrjaði að spila með meistaraflokki ÍR árið 2011 en hann skoraði sex mörk í tuttugu leikjum í 2. deildinni síðastliðið sumar.