07.01.16 - 21:00
Ívan Guðjón Baldursson
Kirchhoff til Sunderland (Staðfest)

Kirchhoff hefur leikið sjö deildarleiki fyrir aðallið Bayern.

Mynd: Getty Images

Sunderland hefur keypt varnarmanninn Jan Kirchhoff frá FC Bayern en hann skrifaði undir eins og hálfs árs samning við félagið.
Kirchhoff er 25 ára miðvörður sem hefur leikið fyrir Mainz, Bayern og Schalke í þýska boltanum.

Kirchhoff var fastamaður í sterku U21 árs liði Þjóðverja fyrir nokkrum árum en hefur einnig leikið fyrir U19 og U18 landslið Þýskalands.
Kirchhoff er hávaxinn miðvörður, eða 195cm á hæð, og þykir einnig mjög góður á boltanum.
Hjá fallbaráttuliði Sunderland mun Kirchhoff berjast við menn á borð við Younes Kaboul, John O\'Shea, Wes Brown og Sebastian Coates um byrjunarliðssæti.