Fotbolti.net
07.01.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Ítalska deildin

Milan Bisevac til Lazio (Staðfest)

Frá Lyon til Lazio

Frá Lyon til Lazio

Canon

Mynd: Getty Images

Lazio hefur gengið frá samningum við serbneska varnarmanninn Milan Bisevac.
Bisevac kemur til Lazio frá franska úrvalsdeildarliðinu Lyon þar sem hann hefur leikið undanfarin fjögur ár.

Þessum 32 ára miðverði er ætlað að fylla skarð Stefan de Vrij hjá Lazio en Hollendingurinn verður frá næstu mánuði vegna meiðsla sem hann varð fyrir í nóvember síðastliðnum.

Bisevac hefur leikið 19 A-landsleiki fyrir Serbíu.

Lazio er í 10.sæti Serie A og hefur fengið á sig flest mörk þeirra liða sem eru í efstu 10 sætunum í ítölsku úrvalsdeildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.