07.01.16 - 15:01
Elvar Geir Magnússon
Tarashaj til Everton - Lánaður strax til baka (Staðfest)

Shani Tarashaj í Grashoppers.

Mynd: Getty Images

Shani Tarashaj í Grashoppers.

Mynd: Getty Images
Everton hefur fengið svissneska U21-landsliðsmanninn Shani Tarashaj frá Grashoppers í Zurich.
Tarashaj er 21 árs sóknarmaður og skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Everton. Hann verður lánaður strax út tímabilið aftur til Grashoppers.

Roberto Martinez, stjóri Everton, segir að Tarashaj eigi afar bjarta framtíð enda búi hann yfir miklum hæfileikum.
„Við erum hæstánægðir að hafa fengið þennan unga leikmann til okkar sem smellpassar í okkar leikstíl. Hann er fjölskyldumaður og hungraður í að ná árangri,\" segir Martinez.
Tarashaj er annar leikmaðurinn sem Everton fær í janúarglugganum eftir að hafa fengið varnarmanninn unga Matthew Foulds frá Bury.