Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 07. janúar 2020 19:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Jones byrjar - Maguire tapaði kapphlaupinu við tímann
Mynd: Getty Images
Ole Gunnar Solskjær og Pep Guardiola, stjórar Manchester-liðanna sem mætast innbyrðis í fyrri viðureign liðanna í enska deildabikarnum klukkan 20:00, hafa tilkynnt byrjunarið sín.

Sjá einnig:
Byrjunarlið Man Utd og Man City: Margar breytingar - Rashford fyrirliði

Phil Jones byrjar í miðverðinum hjá Manchester United vegna fjarveru Harry Maguire sem glímir við meiðsli. Solskjær sagði í viðtali að Maguire væri ekki klár og það væri engum gott að spila honum í kvöld.

Anthony Martial var einnig í kapphlaupi við tímann vegna veikinda en hann byrjar á bekknum hjá Manchester United.

Guardiola ákvað þá að hafa bæði Gabriel Jesus og Sergio Aguero, sína einu eiginlegu framherja, á bekknum. Búast má við því að Raheem Sterling leiði framlínuna í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner