07.01.22 - 16:11
Elvar Geir Magnússon
Arsenal lánar Maitland-Niles til Roma (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Ainsley Maitland-Niles er mættur til Rómar en Arsenal hefur lánað hann til Roma. Samkvæmt Sky Sport Italia mun hann vera í hópnum hjá Roma gegn Juventus á sunnudaginn.
Maitland-Niles, sem er 24 ára, kemur á sex mánaða lánssamningi sem ekki inniheldur nein ákvæði um möguleg framtíðarkaup.

Hinn fjölhæfi Maitland-Niles gæti hugsanlega farið beint inn í byrjunarlið Roma. Síðasti mótsleikur hans var 4-0 tap Arsenal gegn Liverpool þann 20. nóvember.
„Ainsley kom til mín og tjáði mér að hann teldi það besta fyrir sig og sinn feril væri að fara annað til að fá spiltíma," segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal.
Roma er í sjöunda sæti ítölsku A-deildarinnar undir stjórn Jose Mourinho.