07.02.13 - 13:32
Magnús Már Einarsson
Bjarni Hólm í Fram (Staðfest)

Bjarni Hólm við undirritun samningsins.

Mynd: Heimasíða Fram

Bjarni Hólm við undirritun samningsins.

Mynd: Heimasíða Fram
Bjarni Hólm Aðalsteinsson hefur gengið til liðs við Fram en hann skrifaði undir tveggja ára samning við félagið í dag.
Þessi 28 ára gamli leikmaður þekkir til í Safamýrinni en hann kom til Fram frá Huginn árið 2002 og lék með liðinu í tvö ár.

Bjarni lék í kjölfarið með ÍBV og Keflavík en síðustu tvö ár hefur hann lekið með Levanger í Noregi. Bjarni æfði með Stjörnunni fyrir áramót en hann hefur nú gengið í raðir Fram.
,,Ég er mjög spenntur fyrir því að leika með Fram á nýjan leik,“ sagði Bjarni þegar samningur hafði verið undirritaður. ,,Það er gaman að koma hingað aftur, mikill kraftur og metnaður í félaginu og ég vona að ég geti hjálpað liðinu að ná markmiðum sínum.“
Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram, var einnig ánægður með að fá Bjarna til félagsins.
,,Bjarni er góð viðbót við leikmannahópinn okkar og við erum ánægðir með að fá hann til liðs við okkur. Við ætlum okkur stóra hluti í sumar, förum ekkert dult með það, og þessi styrking undirstrikar þann metnað.“
Varnarmaðurinn Hlynur Atli Magnússon fór frá Fram í Þór á dögunum. Bjarni er aftur á móti þriðji miðvörðurinn sem Fram fær til liðs við sig í vetur því áður höfðu Ólafur Örn Bjarnason og Halldór Arnarsson komið til félagsins frá Grindavík og ÍR.

Heimild: Heimasíða Fram