07.02.13 - 14:51
Magnús Már Einarsson
Dofri Snorrason í Víking R. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Víkingur R. hefur náð samkomulagi við KR um kaup á Dofra Snorrasyni. Þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson í meistaraflokksráði í samtali við Fótbolta.net í dag.
Dofri skrifar sjálfur undir þriggja ára samning við lið Víkings.

Dofri þekkir til í Víkinni því hann skoraði fimm mörk í þrettán leikjum með liðinu í fyrstu deildinni árið 2010.
Þessi 22 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá KR en hann getur leikið bæði sem bakvörður og kantmaður.
Í fyrra spilaði Dofri sjö leiki með KR í Pepsi-deildinni áður en hann fór til Selfyssinga á láni síðari hluta tímabils.
Dofri er ekki kominn með leikheimild með Víkingi og hann getur því ekki leikið með liðinu gegn KR í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins í kvöld.