07.02.13 - 19:22
Elvar Geir Magnússon
Guðmundur Pétursson í Fjölni (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sóknarmaður Guðmundur Pétursson er genginn í raðir Fjölnis en frá þessu er greint á Twitter-síðu meistaraflokks félagsins. Guðmundur kemur úr Breiðabliki.
Guðmundur sleit krossband sumarið 2010 og hefur ekki spilað mikið síðan þá. Hann spilaði í fimm leikjum á síðasta sumri í deild og bikar og skoraði tvö mörk.
Guðmundur kom til Breiðabliks frá KR árið 2009 en þar áður lék hann með ÍR í 2. deildinni.
Fjölnir endaði í sjöunda sæti 1. deildarinnar í fyrra.
Guðmundur kom til Breiðabliks frá KR árið 2009 en þar áður lék hann með ÍR í 2. deildinni.
Fjölnir endaði í sjöunda sæti 1. deildarinnar í fyrra.
