Fotbolti.net
07.02.13 - 13:16
Elvar Geir Magnússon

Helgi Óttarr Hafsteinsson í Leikni (Staðfest)

Í leikmannahópnum gegn Val í kvöld

Helgi í leik með Leikni fyrir nokkrum árum.

Helgi í leik með Leikni fyrir nokkrum árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Helgi Óttarr Hafsteinsson er genginn í raðir Leiknis á nýjan leik. Hann hefur fengið leikheimild með liðinu og verður í leikmannahópi liðsins í kvöld þegar leikið verður gegn Val í undanúrslitum Reykjavíkurmótsins.
Þessi baráttuglaði og vinnusami leikmaður getur spilað ýmsar stöður, meðal annars í bakverði og sem djúpur miðjumaður.

Í samtali við Fótbolta.net sagðist Helgi hæstánægður með að vera kominn aftur í raðir félagsins en hann lék með Leikni áður en hann fór í Víking Ólafsvík 2010.

Hann hjálpaði Ólafsvíkurliðinu að komast upp um tvær deildir og ná í undanúrslit bikarkeppninnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.