Fotbolti.net
07.02.13 - 14:30
Magnús Már Einarsson

Loic Ondo í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Loic Ondo í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

BÍ/Bolungarvík hefur fengið varnarmanninn Loic Mbang Ondo til liðs við sig.

Loic kemur til landsins 19. febrúar og mun í kjölfarið byrja að spila með liðinu.
Loic er 23 ára gamall en hann þekkir til hjá BÍ/Bolungarvík eftir að hafa leikið með liðinu á láni sumarið 2011.

Upphaflega kom Loic hingað til lands 2010 en þá var bróðir hans Gilles Mbang Ondo á mála hjá Grindavík.

Loic lék með Grindvíkingum árið 2010 sem og í fyrra en þá skoraði hann eitt mark í þrettán leikjum í Pepsi-deildinni.

Heimild: Heimasíða BÍ/Bolungarvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.