07.02.13 - 06:00
Elvar Geir Magnússon
Saha í Lazio (Staðfest) - „Kominn til að hjálpa\"

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Louis Saha var í gær kynntur sem nýr leikmaður Lazio og fær hann treyju númer 28. Hann fær félagaskipti utan janúargluggans þar sem hann rifti samningi sínum við Sunderland þann 31. janúar.
„Ég er ánægður með að vera kominn í svona stórt félag. Ég vil gera mitt besta, ég er hér til að hjálpa liðinu. Framundan er stór leikur gegn Napoli,\" sagði þessi 34 ára leikmaður á fréttamannafundi.
Claudio Lotito, forseti Lazio, var einnig á fundinum:
„Saha getur bætt okkar hóp. Ferilskráin hans segir sitt og hann kemur hingað ákveðinn í að gera vel. Hann getur hjálpað okkur að ná settum markmiðum.\"
Þá sagði þjálfarinn Vladimir Petkovic að Saha væri ekki aðeins mættur til að leysa Miroslav Klose af en þýski markahrókurinn verður frá vegna hnémeiðsla í tvo mánuði.
„Þegar Klose kemur aftur erum við komnir með fleiri kosti og möguleika. Koma Saha gerir liðið öflugra,\" sagði Petkovic.