Fotbolti.net
07.02.14 - 18:59
Elvar Geir Magnússon

Aaron Spear í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Aaron Spear er kominn vestur.

Aaron Spear er kominn vestur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framherjinn Aaron Spear er kominn í BÍ/Bolungarvík frá ÍBV. Þetta staðfesti Samúel Samúelsson hjá BÍ/Bolungarvík í samtali við Fótbolta.net.

Spear skrifaði undir samning til eins árs en hann hefur æft með liðinu upp á síðkastið.
Spear hefur ekki náð að vinna sér inn fast sæti í liði ÍBV síðan hann kom til félagsins en sumarið 2012 fór hann í Víking Reykjavík á lánssamningi.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem BÍ/Bolungarvík fær til sín í vetur en áður höfðu Björgvin Stefánsson komið frá Haukum og Kári Ársælsson frá ÍA.

BÍ/Bolungarvík hafnaði í fimmta sæti 1. deildarinnar síðasta tímabil.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.