Fotbolti.net
07.02.14 - 06:00
Alexander Freyr Tamimi

Arna Ómarsdóttir í Selfoss (Staðfest)

Arna Ómarsdóttir.

Arna Ómarsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Kvennalið Selfoss í knattspyrnu hefur fengið Örnu Ómarsdóttur til liðs við sig og mun hún leika með félaginu í Pepsi-deildinni í sumar. Þetta kemur fram á Sunnlenska.is.
Arna er 23 ára gömul og spilar sem miðvörður. Hún er uppalin hjá Breiðablik en hefur einnig spilað með KR og HK/Víkingi í efstu deild. Þá á hún tíu landsleiki að baki með U17 og U19 landsliðum Íslands.

Arna lék þrjá leiki með Selfossi í Pepsi-deild kvenna árið 2012 áður en hún fór til Bandaríkjanna í háskólanám.

Hún lék með HK/Víkingi í Pepsi-deildinni fram eftir sumri í fyrra en er í háskóla í Alabama og leikur þar með liði Auburn háskólans. Arna útskrifast frá skólanum í maí þannig að hún mun ná heilu tímabili með Selfyssingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.