07.02.14 - 14:53
Elvar Geir Magnússon
Matt Eliason í Þrótt (Staðfest)

Gregg Ryder þjálfari Þrótta kampakátur með að hafa fengið Matt í sínar raðir.

Mynd: Heimasíða Þróttar

Matt Eliason hefur samið við Þrótt í 1. deildinni en um er að ræða bandarískan sóknarmann sem lék með liðinu gegn Fylki í Reykjavíkurmótinu og skoraði.
„Þetta er frábært og þetta er í fyrsta sinn sem ég fer út fyrir Bandaríkin. Ég er 25 ára gamall og þetta hefur verið frábært til þessa og borgin frábær og allir hafa verið reynst mér vel hérna,\" sagði Matt í viðtali við Fótbolta.net eftir umræddan leik.
„Ég spilaði með North-Western University sem er rétt fyrir utan Chicago og svo reyndi ég fyrir mér í MLS-deildinni. Í gegnum þá reynslu hefur það fært mig hingað. Ég komst í samband við Gregg Ryder hjá Þrótturum í gegnum sameiginlegan vin og það virtist vera gott tækifæri að koma hérna og fá meiri reynslu.\"
Fréttatilkynning Þróttar:
Knattspyrnudeild Þróttar hefur samið við bandaríska sóknarmanninn Matt Eliason um að leikmaðurinn leiki með liði Þróttar næstu tvö árin. Matt er 25 ára og hefur allan sinn feril leikið í Bandaríkjunum og þá lengst af fyrir Northwestern háskólann þaðan sem hann útskrifaðist árið 2011.
Hjá Northwestern sló Matt rækilega í gegn og er í dag markahæsti leikmaður í sögu skólans. Hann dvaldi í skamman tíma hjá New York Red Bulls sem leikur í MLS-deildinni í Bandaríkjunum eftir að hafa skorað glæsilegt mark með bakfallsspyrnu í góðgerðarleik með Lionel Messi og vinum (sjá myndband hér að neðan).
Félagið bíður Matt velkominn í Þrótt og væntir um leið mikils af honum.