Fotbolti.net
07.02.14 - 00:07
Alexander Freyr Tamimi

Vidic yfirgefur Manchester United í sumar (Staðfest)

Vidic yfirgefur Manchester United í sumar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Nemanja Vidic mun yfirgefa Manchester United eftir tímabilið, en þetta kemur fram á vefsíðu félagsins.
Serbneski landsliðsmaðurinn hefur verið fyrirliði United síðan á tímabilinu 2010-11 en rennir nú hýru auga til Ítalíu. Er talið ansi líklegt að hann endi hjá Inter, þó svo að Juventus komi einnig til greina sem og Monaco og Galatasaray.

,,Þetta er síðasta ár samnings míns og ég hef átt átta frábær ár hérna,“ sagði Vidic við heimasíðu United.

,,Tími minn hjá þessu frábæra félagi mun alltaf flokkast sem bestu ár ferils míns.“

„Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að ég myndi vinna 15 bikara og ég mun svo sannarlega aldrei gleyma kvöldinu frábæra í Moskvu (þegar United vann Meistaradeildina árið 2008). Þessar minningar munu lifa með mér og stuðningsmönnunum að eilífu.“

„En ég hef þó ákveðið að halda á önnur mið eftir tímabilið. Ég vil nýja áskorun og reyna að nýta næstu ár sem best.“

„Ég íhuga ekki að vera áfram á Englandi því eina félagið sem ég myndi spila fyrir hérna er Manchester United og ég var heppinn að eiga mörg ár hérna.“

„Ég stend frammi fyrir nokkrum möguleikum og mun velja þann rétta fyrir mig og fjölskyldu mína. Ég ætla nú að setja alla mína orku og einbeitningu í að spila fyrir Manchester United og gera mitt besta út tímabilið.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.