Sesselja Líf Valgeirsdóttir er komin heim í Aftureldingu frá ÍBV en þar hefur hún spilað undanfarin ár.
Sessó hefur spilað 145 leiki í meistaraflokki með Aftureldingu, Þrótti R. og ÍBV.
Þá varð hún bikarmeistari með ÍBV árið 2017 og lék stórt hlutverk í liði ÍBV í Pepsi deild kvenna síðastliðin fjögur tímabil.
„Við í Aftureldingu erum ákaflega stolt að því að semja og endurheimta uppalin leikmann, koma Sesselju Líf er lyftistöng fyrir félagið og eru spennandi tímar framundan hjá félaginu," segir í tilkynningu frá Aftureldingu.
Athugasemdir