Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, átti ekki góðan leik eins og kollegar sínir í vörninni hjá United þegar liðið gerði 3-3 jafntefli við Everton í gærkvöldi.
Man Utd leiddi 2-0 í hálfleik en Everton jafnaði í 2-2 snemma í síðari hálfleik. Man Utd tók aftur forystuna en Everton jafnaði svo á síðustu stundu leiksins.
Dominic Calvert-Lewin skoraði jöfnunarmarkið eftir aukaspyrnu inn á teiginn. Axel Tuanzebe var gagnrýndur mikið fyrir að gefa aukaspyrnuna og David de Gea fyrir að koma ekki meira út af línunni.
Maguire á einnig skilið gagnrýni fyrir staðsetningu sína þegar boltanum var spyrnt inn á teiginn. Þar á meðal gerði hann Michael Keane, sem flikkaði boltanum áfram á Calvert-Lewin, réttstæðann.
Mynd af þessu má sjá hér að neðan.
Harry Maguire, Everton's hero 😂😂😂 pic.twitter.com/XNXvJD44t4
— WittyFutty⚽️ (@wittyfutty) February 7, 2021
Athugasemdir