Fotbolti.net
07.02.22 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Danny Guthrie verður ekki áfram í Fram (Staðfest)

Danny Guthrie verður ekki áfram í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Danny Guthrie mun ekki spila með Fram í efstu deild í sumar. Guthrie gekk í raðir Fram í upphafi síðasta tímabils en hann er fyrrum leikmaður Liverpool, Newcastle og Reading.

Hann er 34 ára miðjumaður sem kom við sögu í sextán leikjum í Lengjudeildinni í fyrra. Þá lék hann í einum leik í Mjólkurbikarnum.
„Hann kláraði sinn samning og maður hafði á tilfinningunni að hann hefði verið mjög sáttur að fá að enda þetta á titli og taka þátt í einstöku sumri. Tilfinning mín var sú að honum hafi fundist þetta góður lokakafli á sínum ferli," sagði Jón Sveinsson, þjálfari Fram, um Guthrie í viðtali í nóvember.

Fram fór ósigrað í gegnum Lengjudeildina og endaði ellefu stigum á undan ÍBV sem endaði í 2. sæti. Fram mætir Víkingi í leik um 3. sætið í Reykjavíkurmótinu á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.