Fotbolti.net
07.02.22 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Filippo Inzaghi rekinn frá Brescia (Staðfest)

Filippo Inzaghi rekinn frá Brescia (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Filippo Inzaghi hefur verið rekinn úr starfi sem aðalþjálfari hjá Brescia í ítölsku Serie B deildinni.
Þessar fregnir koma verulega á óvart á Ítalíu enda er Brescia í þriðja sæti deildarinnar sem stendur, aðeins tveimur stigum eftir toppliði Lecce.

Massimo Cellino, eigandi Brescia og fyrrum eigandi Cagliari og Leeds, ákvað að reka Inzaghi eftir markalaust jafntefli gegn Cosenza um helgina.

Brescia er fimmta liðið sem Inzaghi stýrir á þjálfaraferlinum en áður var hann við stjórnvölinn hjá AC Milan, Venezia, Bologna og Benevento.

Diego Lopez, fyrrum leikmaður Cagliari og úrúgvæska landsliðsins, tekur við keflinu af Inzaghi út tímabilið. Lopez hefur áður þjálfað Palermo, Bologna og Cagliari á Ítalíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.